
Velkomin á Humarhöfnina.
Við vonum að þú njótir þess að vera með okkur.
Við vitum að öll fyrirtæki hafa áhrif á umhverfi og samfélag með starfsemi sinni. Okkar fyrirtæki er engin undantekning. Við reynum að minnka skaðleg áhrif okkar fyrirtækis með því að vera ábyrg hvað varðar umhverfismál og samfélagslega þætti.
Við gerum það meðal annars með því að;
- Innkaup, geymsla og meðferð hráefna Humarhafnarinnar miði ætíð að lágmörkun sótspora og sóun hráefna
- Flokkun, endurvinnsla og urðun úrgangs Humarhafnarinnar miði ætíð að hámörkun vistvænna aðferða og sjálfbærni staðarins
- Við innkaup og notkun hreinlætisvara séu ávallt valdar umhverfismerktar vörur
- Leitast við að nota orkusparandi búnað
- Humarhöfnin sé virkur þátttakandi í nærsamfélaginu og sé meðvituð um mikilvægi samfélagslegrar ábyrgðar. Humarhöfnin er t.d. virkur þáttakandi í samfélagslegu verkefni um loftlagsmál í samvinnu við Sveitarfélagið Hornafjörð og Landvernd.
- með fjárhagslegum stuðningi við ýmis félagasamtök og hjálparstofnanir.
Við ásetjum okkur að vernda hina fallegu náttúru og umhverfi Hafnar og viljum taka þátt í að tryggja að komandi kynslóðir fái að njóta þeirra líka.